Örfáir hnökrar uppgötvuðust eftir að símasfrí var innleitt í grunnskóla en að flestu leyti hefur innleiðingin gengið farssællega að sögn skólastjóra Garðaskóla. Nokkrir nemendur komu að máli við hann eftir innleiðingu símafrís og spurðu hvort hann gæti skipt skífuklukkunum út fyrir stafrænar klukkur því þeir kynnu ekki á þær fyrrnefndu.Skólastjóri Garðaskóla kallar þetta krúttlegt vandamál, hefur ekki miklar áhyggjur af því og kveðst raunar sannfærður um að fullorðnu fólki væri nokkur vandi á höndum ef snjallsímar þess yrðu teknir af því á vinnutíma því mörg af þeim tækjum sem við notum til að auðvelda okkur lífið eru innbyggð í snjallsímana; þeir gera okkur kleift að rata, borga og reikna, svo fátt eitt sé nefnt.Kastljós heimsótti Garðaskóla á dögunum og ræddi við Jóhann Skagfjörð Magnúss