Fimmtán ára gömul tyrknesk stúlka réðst á og særði átta stúlkur í skóla í Istanbúl í morgun. Hún var vopnuð hnífi og er sögð hafa lagt til nemenda og virst sama um hverja þeirra hún særði. Stúlkan sem er grunuð um árásina er nemandi í öðrum skóla í sama hverfi. Að sögn Kemal Memisoglu heilbrigðisráðherra særðist ein stúlka lífshættulega og tvær alvarlega. Fimm hlutu minni áverka og verða væntanlega útskrifaðar af sjúkrahúsi í dag.Þetta er önnur árás tánings á tyrkneskan skóla á einum mánuði. Í september hóf táningur skothríð á skóla í vesturhluta Tyrklands og særði ellefu nemendur, þar af þrjá alvarlega.Tveir táningar gerðu skotárásir í tyrkneskum skólum í apríl.