Vilja ekki sjá sameiningu lögregluumdæma

Áform dómsmálaráðherra um að fækka lögregluumdæmum landsins í þrjú falla í grýttan jarðveg í Fjarðabyggð þar sem bæjarráð leggst alfarið gegn því að yfirstjórn lögreglunnar verði flutt úr landshlutanum.Samkvæmt tillögu ráðherra verða lögregluembættin á Suðurlandi, í Vestmannaeyjum og á Austurlandi sameinuð í eitt embætti. Bæjarráð Fjarðabyggðar mótmælir þessu í bókun sem var samþykkt á síðasta fundi ráðsins.„Bæjarráð hafnar því að sjálfstætt lögregluembætti á Austurlandi verði lagt niður og stjórnun löggæslu í landshlutanum verði færð í margra klukkustunda fjarlægð og út fyrir Norðausturkjördæmi.“Bæjarráð segir að reynsla undanfarinna ára af náttúruvá sýni með ótvíræðum hætti mikilvægi staðbundinnar þekkingar, skýrrar ábyrgðar og öflugrar stjórnunar almannavarna í heimabyggð. Það gefur lít
Vilja ekki sjá sameiningu lögregluumdæma

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd