Bókun 35 á dagskrá Alþingis í dag

Lagafrumvarp ríkisstjórnarinnar um að innleiða bókun 35 í íslenska löggjöf verður tekið til umræðu á Alþingi í dag. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra mælir fyrir frumvarpinu. Þetta er eina málið á dagskrá Alþingis í dag fyrir utan störf þingsins í upphafi þingfundar.Þetta er í þriðja sinn sem frumvarp um bókun 35 er lagt fram á Alþingi. Á þarsíðasta þingi var búið að mæla fyrir því og ljúka nefndarstörfum milli fyrstu og annarrar umræðu. Frumvarpið varð þó ekki að lögum að því sinni þar sem það var ekki hluti af samkomulagi ríkisstjórnar og stjórnarandstöðu um þinglok.Eftirlitsstofnun EFTA höfðaði í síðustu viku mál gegn íslenskum stjórnvöldum vegna þess að bókunin hefði ekki verið innleidd með réttum hætti. Þorgerður Katrín sagði þá að meiri bragur væri á því að ljúka málin
Bókun 35 á dagskrá Alþingis í dag

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd