Plássnýting á sjúkrahúsi SÁÁ að Vogi er enn langt undir markmiðum. Innan við 20 eru þar inniliggjandi en pláss er fyrir 45. Sigurður H. Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, segir enn unnið að því að finna lausnir á vanda SÁÁ.Sigurður gerir ráð fyrir að innritunum fjölgi í þessari viku með tímabundinni endurkomu Valgerðar Rúnarsdóttur, fráfarandi framkvæmdastjóra lækninga SÁÁ.Valgerður, sem sneri aftur til starfa á föstudag, segir í samtali við fréttastofu að nokkrir hafi verið innritaðir í gær og fleiri verði innritaðir í dag. Hún segir ekki hægt að nýta öll plássin á Vogi því sjúkrahúsið sé enn verulega undirmannað.Auk Valgerðar höfðu forstjóri SÁÁ og teymisstjóri á Vogi sagt upp störfum vegna meintra afskipta stjórnar SÁÁ af heilbrigðisstarfinu. Fleira starfsfólk fór í veikindale