Adam heldur utan um starfsemina á vefsíðunni hnifur.is þar sem finna má hinar ýmsu gerðir hnífa, skæra og skyldra vara.Adam Brands Þórarinsson er hnífasmiður á Akureyri. Hann sinnir líka lagfæringum og brýningum og flytur inn hnífa. Landinn heimsótti hann í bílskúrinn þar sem hann rekur verkstæði sitt.„Þetta er eitthvað meðfætt held ég. Þetta var bara eitthvað svona áhugamál en svo fyrir nokkrum árum bjó ég til síðuna og byrjaði að selja. Svo fyrir þremur árum fjárfesti ég í græjum til að byrja að smíða. En fyrsti hnífurinn var mjög ljótur,“ segir Adam.Stærsti hlutinn af hnífum sem Adam vasast með eru eldhúshnífar og þar hafa japanskir hnífar sérstöðu. En á sumrin eykst salan á vasahnífum, veiðihnífum og flökunarhnífum þegar fólk er meira úti við. Tálgunarhnífar hafa líka verið vinsælir up