Skipverja er saknað eftir að drónum var skotið á tvö flutningaskip á Svartahafi úti fyrir ströndum Búlgaríu. Annað skipið sökk.Rumen Nikolov, yfirmaður almannavarna í Varna, sagði í samtali við almannaútvarpið BNR að áhafnar skipsins sem sökk væri saknað. Búið er að bjarga þeim skipverjum sem voru um borð í skipinu sem enn er á floti.Ríkisstjórn Búlgaríu hefur verið boðuð til neyðarfundar í dag vegna árásanna á skipin.Fréttin verður uppfærð.