Velta og viðskipti ekki verið minni í kauphöllinni frá 2020

Það sem af er þessu ári hefur íslenska OMX15-vísitalan, sem mælir gengi 15 stærstu félaganna á markaði, lækkað um rúmlega 11%. Til samanburðar þá hefur sænska úrvalsvísitalan hækkað um rúm 15%, finnska um tæp 14% en sú danska hefur reyndar lítið hreyfst.Magnús Harðarson, forstjóri íslensku kauphallarinnar, Nasdaq Iceland, segir að ládeyðan á markaðnum sé óvenjuleg. Miðað við þróun undanfarinna ára sé veltan um 40% minni en við hefði mátt búast. Stærsti áhrifaþátturinn sé háir vextir og ákveðin vantrú á að takist að beisla verðbólguna og koma efnahagsstjórninni á réttan kjöl.Ákveðinnar bjartsýni hafi farið að gæta í ársbyrjun 2025 þegar Seðlabankinn byrjaði að lækka vexti en hún hafi farið þverrandi eftir því sem verr hefur gengið að draga úr verðbólgu - og ekki bætti úr skák þegar stýrivex
Velta og viðskipti ekki verið minni í kauphöllinni frá 2020

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd