Norðurljósin skörtuðu sínu fegursta í gærkvöld og nótt

Jóhann Ólafur Björnsson frá Akranesi og Magnús Björn, 8 ára sonur hans, sáu um ellefuleytið í gærkvöld að eitthvað mikið væri að gerast á himnum. Þeir klæddu sig upp og gengu niður á Breið. Þar standa tveir myndarlegir vitar og mjög lítil ljósmengun. Feðgarnir stöðvuðu í um klukkustund hjá vitunum til að verða vitni að einni mögnuðustu sýningu sem náttúran hefur upp á að bjóða. „Það var frekar sérstakt að vera í margmenni þarna seint um kvöld, en ætli það hafi ekki verið um 150 til 200 manns á staðnum,“ segir Jóhann Ólafur. Jóhann tók meðfylgjandi myndir á símann sinn. „Ég vildi óska þess að ég hefði haft góða myndavél, því þó svo að nokkrar af símamyndunum sem ég tók séu ágætis myndir þá var engin leið að ná almennilega á filmu mikilfengleikann sem við okkur blasti.“ Samfélagsmiðlarnir vo
Norðurljósin skörtuðu sínu fegursta í gærkvöld og nótt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd