„Okkur líst mjög vel á þetta skref. Nýleg greining sýnir að húsnæðiskostnaður er 48,3% af verðbólgu frá árinu 2015 til september á þessu ári. Allt annað til samans vegur tæp 52%. Við teljum þetta mjög stórt skref til þess að draga úr verðbólgu,“ segir Yngvi Ómar Sigrúnarson, formaður Samtaka leigjenda á Íslandi, í samtali við Morgunblaðið.