Fimm hundruð manna herlið sent að landamærum Bandaríkjanna

Stjórnvöld í Mexíkó hafa sent fimm hundruð manna herlið að landamærunum að Texas í Bandaríkjunum.EPA / MARIO GUZMANÞað var ákveðið eftir að sendiherra Bandaríkjanna í Mexíkó sagði að skotum hefði verið hleypt af frá ríkinu Tamaulipas í átt að bandarískum strandgæsluliðum.Þrátt fyrir að Bandaríkin hafi ekki fært sönnur fyrir skothríðinni tilkynnti Claudia Sheinbaum forseti að senda hermenn að landamærum ríkjanna. Tvö glæpagengi hafa lengi barist um yfirráð í Tamaulipas og Donald Trump Bandaríkjaforseti bætti þeim báðum á lista yfir hryðjuverkasamtök í janúar á síðasta ári.
Fimm hundruð manna herlið sent að landamærum Bandaríkjanna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd