Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur að tillögu varnarmálaráðherrans Pete Hegseth samþykkt að Nidal Hasan, dæmdur hryðjuverkamaður, verði tekinn af lífi með aftökusveit. Talsmaður varnarmálaráðuneytisins greindi frá þessu í færslu á X.Aftaka Hasans verður sú fyrsta sem bandaríski herinn framkvæmir síðan árið 1961. Hasan var dæmdur til dauða fyrir hryðjuverk í anda al-Kaída árið 2013.Hann var liðsforingi og geðlæknir í Bandaríkjaher sem gekk berserksgang og skaut þrettán manns til bana, tólf hermenn og einn almennan borgara, í Hood-herstöðinni í Texas árið 2009. Auk þess særðust tugir manna og Hasan sjálfur lamaðist fyrir mitti eftir skotsár sem hann hlaut þegar hann var yfirbugaður.Í tilkynningu varnarmálaráðuneytisins segir að yfirmaður heraflans ákveði dagsetningu aftökunnar. „Dómsdagur