Kóngsbænadagur eða store bededag verður frídagur að nýju í Danmörku frá og með árinu 2030. Innanríkisráðherrann Pia Olsen Dyhr staðfestir þetta við danska ríkisútvarpið með þeim orðum að hún telji marga Dani vilja eiga sameiginlegan frídag til að verja með fjölskyldu sinni.Sú launauppbót verður aflögð sem launþegar hafa fengið frá árinu 2024 þegar stjórnvöld ákváðu að Kóngsbænadagur yrði ekki lengur frídagur. Sparnaðinum var ætlað að verja til varnarmála. Endurupptakan verður hluti af kjaraviðræðum áranna 2028 til 2029. LÖNGU AFLAGÐUR Á ÍSLANDI Kóngsbænadag ber upp fjórða föstudag eftir páska, jafnan í apríl eða maí og er samsuða úr nokkrum kaþólskum helgidögum.Hann var tekinn upp í öllu danska ríkinu árið 1686 og var aflagður á Íslandi árið 1893. Stjórnvöld í Færeyjum og Grænlandi virð