Guterres hvetur til varanlegs vopnahlés á Gaza

Antonio Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hvatti í gær til varanlegs vopnahlés á Gaza í aðdraganda þess að þrjú ár verða liðin frá árás Hamas-hreyfingarinnar á Ísrael 7. október næstkomandi.„Það er kominn tími til að vopnahléð verði varanlegt. Það er tímabært að heimila umfangsmikla mannúðaraðstoð og að virða alþjóðalög,“ sagði Guterres í yfirlýsingu. Hann hvatti jafnframt til að fundin verði pólitísk leið til varanlegs friðar í heimshlutanum öllum.Hann minntist þeirra rúmlega 1.200 Ísraela og erlendu ríkisborgara sem drepnir voru í árás Hamas og þeirra sem teknir voru gíslingu.Hann lýsti árásinni sem viðbjóðslegri. Guterres krafðist þess jafnframt að gífurlegri þjáningu Palestínumanna á Gaza ljúki umsvifalaust. Þeir hefðu búið við hræðilegt mannfall, eyðileggingu og fólks
Guterres hvetur til varanlegs vopnahlés á Gaza

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd