Óprúttnir aðilar urðu sér úti um persónuupplýsingar 8,8 milljón Dana með því að misnota löglegan aðgang að dönsku þjóðskránni, CPR. Í skrám CPR má finna upplýsingar um nöfn, heimilisföng og kennitölur fólks. Dönsk stjórnvöld greindu frá atvikinu í gærkvöld.Alls búa rúmlega sex milljónir í Danmörku en CPR-kerfinu er ekki einungis að finna upplýsingar um fólk sem býr í landinu heldur einnig um þá sem eru brottfluttir eða látnir. Spellvirkjarnir hafa því farið mikinn og gengið skrefinu lengra í leitinni.Að sögn yfirvalda er ekki um innbrot í tölvukerfið að ræða heldur misnotkun á löglegum aðgangi dansks fyrirtækis að skránni. Aðgangurinn var svo notaður til þess að komast yfir upplýsingar um þessar 8,8 milljónir manna.Komið var auga á óreglulega virkni í kerfinu í seinustu viku og var aðgangi