Vegagerðin varar við hrími á vegum og launhálku við vissar aðstæður.Birgir Þór Harðarson Vegagerðin varar við því að sums staðar geti orðið vart hríms eða launhálku á vegum í nótt, einkum þar sem vegir liggja í dældum í landslagi nærri sjó, vatni eða ám. Vegir eru þó yfirleitt þurrir. Í nótt verður hæg breytileg átt og víða heiðskírt og frystir víðast hvar á landinu, þar með talið á höfuðborgarsvæðinu. Á morgun hlýnar aftur þegar sólar nýtur.