Bergur Ebbi Benediktsson, rithöfundur, telur tæknina orðna andlitslausari en áður og sér í lagi gervigreindartæknina. Sýnilegir leiðtogar á borð við Steve Jobs og Bill Gates hafi á árum áður kynnt nýjungar og sett fram hugmyndir um framtíðina en nú sé óljósara hver leiði þróunina og á hvaða forsendum. „Svo finnst mér eins og það sé bara horfið og nú þetta er orðið alveg andlitslaus tækni.“