Stjórnmálafræðingur segir útlit fyrir að úrtak könnunar sem notað var við vinnslu skýrslu um stöðu karlmanna á Norðurlöndunum hafi verið verulega skekkt. Taka þurfi niðurstöðum með fyrirvara. ÚRTAKIÐ ENDURSPEGLI EKKI ÞÝÐIÐ Alþjóðlega hugveitan Equimundo vann skýrsluna að beiðni Norrænu ráðherranefndarinnar og var hún birt í síðasta mánuði.Skýrslan er sú fyrsta sinnar tegundar og byggir á niðurstöðum netkönnunar könnunarfyrirtækisins RepData.Könnunin náði til karla og kvenna á aldrinum 18 til 45 ára á Norðurlöndunum og voru þau spurð út í hinar ýmsu hliðar karlmennskunnar.Niðurstöður gefa til kynna að íslenskir karlmenn séu með íhaldssamari hugmyndir um karlmennsku en frændur þeirra á öðrum Norðurlöndum – en einn af hverjum þremur karlkyns svarendum á aldrinum 18 til 24 ára telur að ekki