Sameiginlegur fundur stjórnar VR og samninganefndar Landssambands íslenskra verslunarmanna er nýafstaðinn. Á fundinum fengu bæði stjórn VR og LÍV umboð til að segja upp kjarasamningum komi Samtök atvinnulífsins ekki til móts við félögin.Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir enn ekkert tilefni hafa verið gefið til þess að samningar haldi.„Ég vonast auðvitað til þess að SA mæti svolítið lausnamiðað að borðinu og að við setjumst raunverulega yfir lausnir sem geta þjónað ólíkum hagsmunum og komið til móts við báða aðila.“Klukkan tifar en verkalýðsfélög hafa frest til 8. október til þess að segja upp kjarasamningum. Halla vonast til þess að sest verði niður og gerð raunveruleg atlaga til þess að finna lausn sem hagnast báðum aðilum.„Þetta mun allavega allt liggja fyrir klukkan fjögur á fimmtuda