Utanríkismálastefna Bandaríkjanna hefur gerbreyst eftir að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, komst aftur til valda og snýst meira um viðskiptahagsmuni vina hans og vandamanna en að tryggja þjóðarhag og varðveita lýðræði í heiminum. Þetta segir bandaríski sagnfræðingurinn og stjórnmálaskýrandinn Anne Applebaum. Sigríður Hagalín Björnsdóttir ræddi við hana í Silfrinu í kvöld.Tilefnið var meðal annars bók Applebaum, Einræði hf., sem kom út nýlega í þýðingu Björns Bjarnasonar. Þar fjallar Applebaum um hvernig tengsl hafa myndast milli stjórnvalda, auðmanna, áróðursmiðla, leyniþjónustu og alþjóðlegra viðskiptaneta sem vinna að því að styðja einræðisstjórnir og veikja lýðræðisríki.Hægt er að sjá viðtalið við Applebaum í heild sinni hér fyrir neðan.Bandaríski stjórnmálaskýrandinn Anne Applebau