Mikið mæddi á vegum í vatnsveðri síðustu daga

Rigningar síðustu daga hafa valdið skemmdum á vegum víða um land, og malarvegir hafa orðið verst úti. Þá hafa skriður og grjót fallið á vegi á Vestfjörðum.Víða um land rigndi svo mikið að skemmdir urðu á vegum. Aurskriður og grjót hafa fallið á vegi bæði austanlands og vestan.Vatnsveður síðustu daga hefur valdið skemmdum á vegum á hálendinu, Austurlandi og Vestfjörðum.Vegurinn við Áreyjarbrú í Reyðarfirði fór í sundur fyrir helgi svo að ábúendur á Áreyjum urðu innlyksa fyrripart dags. Vegagerðin brást snögglega við og búið var að fylla í skarðið síðdegis.Vatnsveður síðustu daga hefur valdið skemmdum á vegum á hálendinu, Austurlandi og Vestfjörðum.Skriða féll á Steinadalsveg í sunnanverðum Gilsfirði. Fyrir helgi lokaði skriða veginum milli Ísafjarðar og Hnífsdals. Á hálendinu er mikið vatn
Mikið mæddi á vegum í vatnsveðri síðustu daga

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd