Dísilverð hærra en það var fyrir verðlækkun um áramót

Ökumenn hafa eflaust flestir tekið eftir skörpum hækkunum á eldsneyti undanfarið. Bensínverð hefur hækkað um fjórðung frá því að skattalækkun stjórnvalda féll úr gildi í byrjun september og um næstum fjörutíu prósent síðan í byrjun árs. Dísilverð er orðið hærra en það var fyrir verðlækkun um áramót. SJÖ KRÓNUM HÆRRA LÍTRAVERÐ OG KÍLÓMETRAGJALD AÐ AUKI Dísilverð lækkaði um næstum 90 krónur um áramótin með tilkomu kílómetragjalds, úr 293 krónum í 204 krónur, ef miðað er við ódýrustu dæluna hverju sinni. Eftir árásir Ísraelshers og Bandaríkjanna á Íran í lok febrúar tók verðið að rísa allt þar til stjórnvöld lækkuðu virðisaukaskatt á eldsneyti í maí. Lækkunin féll úr gildi í byrjun september og þá hækkaði verðið á ný og er nú 300 krónur, eða sjö krónum hærra en það var fyrir áramót.Kílómet
Dísilverð hærra en það var fyrir verðlækkun um áramót

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd