Þegar árið var ríflega hálfnað mátti sjá að útflutningsverðmæti eldisafurða hafði aldrei áður verið meira. Framleiðsluaukning í eldinu hafði enda verið umtalsverð á milli ára, eða ríflega 46 prósent. Talið er að heildarframleiðsla í fiskeldi í sjó og á landi geti í ár slagað upp í 80 þúsund tonn.