Landssamband veiðifélaga hyggst kæra leyfisveitingu fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði

Landssamband veiðifélaga hyggst taka þátt í að kæra rekstrar- og starfsleyfi fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Í yfirlýsingu Landssambandsins gagnrýnir það líka tafir á nýju áhættumati erfðablöndunar.„Við bara mótmælum harðlega þessari útgáfu rekstrar- og starfsleyfis í Seyðisfirði,“ segir Jóhann Helgi Stefánsson, framkvæmdastjóri Landssambands veiðifélaga. ÁR Á AUSTURLANDI OG NORÐAUSTURLANDI Í HÆTTU Hann segir reynslu af strokum úr laxeldi sýna að lax geti ferðast langar leiðir. Ár á Austurlandi og Norðausturlandi séu undir. Sú sem rennur í Seyðisfjörð verði fyrir þungum búsifjum. „Það er alveg ljóst að þegar slepping verður mun lax leita upp í hana og ef svo illa vill til þá mun hann hrygna,“ segir Jóhann.Í Seyðisfirði er sæstrengur, auk þess sem Norræna og önnur skip sigla þar um.Jóha
Landssamband veiðifélaga hyggst kæra leyfisveitingu fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd