Maður var dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyrir líkamsárás með því að hafa meðal annars slegið barnsmóður sína í andlitið, tekið hana kverkataki og sparkað í hana þar sem hún lá. JÁTAÐI SKÝLAUST EFTIR AÐ ÁKÆRUVALDIÐ FÉLL FRÁ SAKARGIFTUM Málið var tekið fyrir í héraðsdómi Austurlands í byrjun september. Þar neitaði maðurinn hluta sakargiftanna en gekkst við þeim að öðru leyti. Hann var upphaflega ákærður fyrir stórfellda líkamsárás samkvæmt 218. grein almennra hegningarlaga en játaði eftir að háttsemin var heimferð á 217. grein, sem snýr að líkamsárás.Ákæruvaldið féll þá frá þeim sakargiftum sem maðurinn neitaði. Á endanum var hann sakaður um líkamsárás í tvö skipti: Með því að hafa veist að barnsmóður sinni á heimili þeirra með líkamlegu ofbeldi 15. janúar og 8. maí.Í fyrra skiptið er