Tímabundið drónabann vegna heimsóknar Marco Rubios

Tímabundið drónabann verður í miðborg Reykjavíkur í dag og á morgun vegna heimsóknar Marco Rubios, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Samgöngustofu. Bannið er af öryggisástæðum og verður frá klukkan 17 í dag, 5. október, til klukkan 16 á morgun, 6. október. Óheimilt verður að fljúga dróna, eða öðrum fjarstýrðum loftförum innan svæðisins sem er þakið rauðu á kortinu. Ómönnuðum loftförum, drónum og öðrum fjarstýrðum loftförum verður einnig óheimilt að vera á lofti eða í 500 metra radíus frá lögreglufylgd bílalestar. Drónabann verður á svæðinu sem er rauðmerkt á kortinu.Ísland.is / SamgöngustofaLögregla verður með drónahóp sem sinnir löggæslu og eftirliti úr lofti.
Tímabundið drónabann vegna heimsóknar Marco Rubios

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd