Samþykkt var í menningarráði Reykjavíkurborgar á föstudag að koma á laggirnar svokölluðum spretthóp til þess að koma til móts við þá fimmtán hópa á menningarsviðinu sem fengu uppsögn á leigusamningum við Reykjavíkurborg á dögunum. Sjá einnig Borgin segir upp leigu í skugga dagsekta Það var menningarþátturinn Lestin sem fjallaði fyrst um málið en Heimildin ræddi í kjölfarið við formann borgarráðs...