Sjálfstæðisflokkurinn í Suðurnesjabæ harmar að meirihlutasamstarfi við lista Samfylkingarinnar sé lokið og segir það áhyggjuefni að bæjarstjórn Suðurnesjabæjar springi í annað sinn vegna „vinnslu á vallarmálum,“ að því er fram kemur í yfirlýsingu.Þar er átt við áform um uppbyggingu gervigrasvallar í sveitarfélaginu. Völlurinn átti að vera í Sandgerði samkvæmt stefnumarkandi tillögum sem allir flokkar í bæjarstjórn samþykktu 9. september en meirihlutinn í sveitarstjórn Suðurnesjabæjar sprakk vegna sömu áforma 2024.Í yfirlýsingu frá lista Sjálfstæðisflokksins og óháðra í Suðurnesjabæ, sem Víkurfréttir fjalla um, segir að þeirra afstaða væri að best væri að reisa eitt fjölnota íþróttahús á Miðjunni milli Sandgerðis og Garðs. Þeir hafi stutt sameiginlega tillögu bæjarstjórnar 9. september í gó