Hópsmit kom upp hjá starfsfólki Reykjavíkurborgar í Borgartúni í þarsíðustu viku. 40 starfsmenn veiktust og nóróveira greindist í tveimur sýnum. Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur tókst ekki að tengja smitið við tiltekin matvæli og metur hópsmitið yfirstaðið.Þetta kemur fram í tilkynningu frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur. Þar kemur fram að það hafi unnið að rannsókn á hópsmiti í samvinnu við sóttvarnalækni, Matvælastofnun og umdæmislækni sóttvarna.Veikindi starfsfólksins komu fram 24. til 28. september og helstu einkenni voru uppköst, niðurgangur og hiti.Viðtöl voru tekin við þá sem veiktust og upplýsinga aflað um neyslu í mötuneyti Reykjavíkurborgar í Borgartúni dagana áður. Hluti þeirra sem veiktust var beðinn um að skila sýni. Niðurstaða úr þremur sýnum liggur fyrir og nóróveira grein