Telur líklegt að kjarasamningum verði sagt upp

Halla Gunnarsdóttir formaður VR telur líklegt að kjarasamningum verði sagt upp.Sagt var frá því fyrr í dag að stjórn VR ætlaði að óska eftir heimild til að segja upp kjarasamningum ef ekkert breyttist í samskiptum þeirra og Samtaka atvinnulífsins (SA). Halla segir að síðan þá hafi borist viðbrögð frá SA.„Sem eru okkur mikil vonbrigði, þar sem þau eru enn sem komið er ekki að koma til móts við þær sjálfsögðu kröfur sem við höfum gert,“ segir Halla.„Það er ekkert í þeim viðbrögðum tilefni til annars en að við neyðumst til að segja samningum lausum.“Félagsmenn VR eru um 40 þúsund og teljast hátt í 50 þúsund með landssambandinu. Það er stærsta stéttarfélag landsins. Samtals eru VR, LÍV og fagfélögin um helmingur hins almenna vinnumarkaðar.Forsenduákvæði kjarasamninga brast í ágúst þegar verðbó
Telur líklegt að kjarasamningum verði sagt upp

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd