Verðmat á Eimskip hefur verið hækkað eftir að rekstur félagsins reyndist talsvert sterkari en væntingar stóðu til á öðrum ársfjórðungi og hagræðingaraðgerðir eru farnar að skila sýnilegum árangri. Greinendur telja að framlegð flutningafélagsins geti batnað mun hraðar en áður var spáð, þótt aðstæður á alþjóðlegum gámaflutningamarkaði séu áfram krefjandi.