Vilja opna gestastofu í kínversk-íslensku norðurljósastöðinni

Framkvæmdum er að mestu lokið við kínversk-íslenska norðurljósarannsóknastöð í Reykjadal í Þingeyjarsveit, tólf árum eftir fyrstu skóflustunguna. Byggingin kostaði um milljarð íslenskra króna.Í landi Kárhóls, innan um beitar- og ræktarlönd, stendur rúmlega 700 fermetra hús með kúptum gluggum á þaki.Þar eru myndavélar, sem eiga að fanga norðurljós.Það hefur gustað um rannsóknarstöðina undanfarin ár. Fjölmiðlar sögðu frá því að Byggðastofnun ætlaði að bjóða eignina upp vegna vanskila - sem þó varð ekki raunin því kínverska ríkið borgaði brúsann.Nato og sérfræðingar í þjóðaröryggismálum hafa lýst áhyggjum af að þarna gæti Kína stundað eftirlit og njósnir. Ríkislögreglustjóri sagði árið 2025 að óvissa ríkti um starfsemina.Íslenskir forsvarsmenn segja stöðina ætlaða til náttúrurannsókna.
Vilja opna gestastofu í kínversk-íslensku norðurljósastöðinni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd