Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði Ísland vera góðan vin Bandaríkjanna áður en hann lagi af stað í Íslandsheimsókn í dag. „Þetta er tækifæri til að koma við þar og ræða við fólk. Þetta kemur í kjölfar samtala minna við leiðtoga Íslands á leiðtogafundi NATO fyrr á árinu og við utanríkisráðherra landsins og ég hlakka mikið til,“ sagði Rubio við blaðamenn áður en hann steig um borð í flugvél sem flytur hann til Íslands.Samtöl við ráðamenn um samvinnu á sviði efnahags- og öryggismála eru á dagskrá bandaríska utanríkisráðherrans hér á landi. Utanríkisráðherra Íslands, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, hefur sagt varnarmál, öryggi á norðurslóðum og viðskipti vega þyngst.Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, segir heimsóknina til merkis um aukið mikilvægi