Trúnaðarbresturinn sem Samfylkingin og óháðir töldu svo alvarlegan að slíta þyrfti meirihlutasamstarfi við Sjálfstæðisflokkinn snýr samkvæmt heimildum fréttastofu að tilraun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins til að mynda nýjan meirihluta með Framsóknarflokknum og Miðflokki. Tilraunin var þó ekki gerð af oddvita flokksins heldur þeim sem situr í öðru sæti.