Tugir manna eru sagðir hafa verið settir í sóttkví í Síberíu í Rússlsandi eftir að starfsmaður rannsóknarstofu lést tveimur dögum eftir að hafa verið lögð inn á spítala. Enn er óljóst hvernig starfsmaðurinn lést en erlendir miðlar greina frá því að hún hafi hugsanlega látist eftir slys á rannsóknarstofunni sem er sögð hafa það helsta markmið að rannsaka skæða faraldra, það er að segja plágur.