Aðildarfélög Alþýðusambands Íslands gerðu launakröfur upp á 1,4 milljarða króna á síðasta ári vegna vangreiddra launa félagsmanna sinna. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu ASÍ um brotastarfsemi á vinnumarkaði.Í skýrslu ASÍ kemur fram að 56 prósent krafna eru vegna starfsfólks undir 35 ára aldri þrátt fyrir að sá hópur sé aðeins 40 prósent allra starfsmanna. Að auki er rúmlega helmingur launakrafna gerður fyrir erlenda ríkisborgara þrátt fyrir að þeir séu aðeins tæplega fjórðungur starfsmanna.Félögin lögðu fram 863 almennar launakröfur upp á samtals 729 milljónir króna vegna vangreiddra launa. Algengast er að slíkar kröfur snúi að því að atvinnurekandi hafi greitt laun undir taxta, launin hafi verið vitlaust reiknuð eða ekki hafi verið staðið við allar greiðslur í tengslum við uppsögn.Kröfur