Tveir innbrotsþjófar reyndu að komast inn í barnaherbergi í íbúð í fjölbýlishúsi í miðborg Reykjavíkur í nótt. Heimilisfaðirinn vaknaði við mennina tvo og bankaði hraustlega í gluggann, við það létu þeir sig hverfa, hafði hann svo samband við lögreglu sem kom á vettvang.