Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir að frumvarpi til breytinga á húsaleigulögum hafi verið flýtt til að bregðast við stöðu kjarasamninga. Verði frumvarpið að lögum verður ekki löglegt að hækka húsaleigu nema á árs fresti og verður mánaðarleg vísitölutenging bönnuð.Frumvarpinu er ætlað að styrkja stöðu leigjenda með auknum fyrirsjáanleika og skýrara regluverki. Með afnámi á mánaðarlegum hækkunum húsaleigu er ætlunin að draga úr vægi verðtryggingar.„Það er að segja að það koma verðbætur og svo verðbætur ofan á verðbætur og þar sem leiguverð hefur núna, í rauninni, ráðandi vægi í mælingum vísitölu neysluverðs þá mun þetta klárlega hafa jákvæð áhrif á þær mælingar,“ segir Ragnar Þór.Segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra. Sett verður á leiguþak þ