Heilbrigðisráðherra fékk fyrir hádegi afhentan undirskriftarlista með 600 nöfnum þar sem lokun hjúkrunardeildarinnar Ljósheima við sjúkrahúsið á Selfossi er harðlega mótmælt.Samhliða nýbyggingu við sjúkrahúsið verður Ljósheimum lokað og lokast þá 20% hjúkrunarrýma í Árborg.Það var Aldís Sigfúsdóttir, sem býr á Selfossi, sem gekk á fund heilbrigðisráðherra, Ölmu D. Möller nú rétt fyrir hádegi og afhenti henni undirskriftarlistann í heilbrigðisráðuneytinu við Skúlagötu í Reykjavík.Málið snýst um það að nú á að fara að byggja um 5.000 fermetra byggingu við sjúkrahúsið á Selfossi en á sama tíma verður hjúkrunarheimilið Ljósheimar lagt niður en þar eru tuttugu hjúkrunarrými.Aldís og þeir 600 sem skrifuðu undir mótmælabréfið eru mjög ósátt við lokunina og segja það stórt högg fyrir stærsta þjónu