Alvotech hækkar í verði eftir viðbótarleyfi

Hlutabréf í Alvotech hafa hækkað um tæp sjö prósent í verði í dag. Fyrirtækið tilkynnti í morgun að Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefði veitt fyrirtækinu viðauka við markaðsleyfi þess fyrir hliðstæðu við Humira-líftæknilyfið. Bætt hafði verið úr vanköntum og verður því hægt að tvöfalda framleiðsluna fyrir Bandaríkjamarkað.Hækkunin á hlutabréfum Alvotech er sú langmesta í Kauphöllinni í dag. Næst koma hlutabréf í JBT Marel sem hafa hækkað um eitt og hálft prósent.Höfuðstöðvar Alvotech.Alvotech / Stefán Drengsson
Alvotech hækkar í verði eftir viðbótarleyfi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd