Bandaríski geð- og taugasjúkdómalæknirinn Karl Deisseroth og þýskir samstarfsmenn hans, Peter Hegemann og Georg Nagel, hlutu í dag Nóbelsverðlaun í læknisfræði fyrir rannsóknir sínar á sviði ljósstýrðrar erfðatækni (e. optogenetics).Innan þess fræðasviðs er rannsakað hvernig tilteknar frumugerðir stuðla að ákveðinni hegðun eins og ótta, fíkn og hreyfingu. Mögulegt er að talið að rannsóknir á þessu sviði geti einn daginn nýst við þróun meðferða við taugasjúkdómum og skynjunartruflunum, eins og Parkinson og flogaveiki.Í tilkynningu Nóbelsnefndarinnar segir að með því að nýta tæknina hafi vísindamenn getað varpað ljósi á hvernig ákveðnar taugabrautir stýra ákveðnum minningum, tilfinningum og hegðun sem tengist tauga- eða geðsjúkdómum.Vísindamennirnir taka við verðlaununum við hátíðlega athöfn