Öllu starfsfólki Fosshótels Rauðarár hefur verið sagt upp störfum. Hluti starfsfólksins fær starf hjá öðrum hótelum á vegum Íslandshótela.Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela, segir að alls hafi 26 starfsmönnum verið sagt upp. Það er allt starfsfólk hótelsins, að undanskildum hótelstjóranum en hann gegnir einnig starfi hótelstjóra Fosshótels Lindar sem stendur við sömu götu.Hann segir að öllum hafi verið sagt upp en oft vanti starfsfólk á önnur hótel. Hluti starfsfólks á Rauðará hafi sótt um og fengið störf. Hann segist ekki vita hve stór hluti það er af þeim sem var sagt upp.Fosshóteli Rauðará verður lokað 1. nóvember vegna framkvæmda. Til stendur að gera hótelið upp og opna það undir nýju merki á næsta ári.