Trúnaðarráð og stjórn VR ræða uppsögn kjarasamninga í kvöld

Stjórn VR gæti sagt upp kjarasamningi við Samtök atvinnulífsins í kvöld ef ekkert breytist í millitíðinni.Trúnaðarráð VR hefur verið boðað saman til fundar klukkan 17:30 til að ræða stöðuna í kjaramálum. Ráðið er stjórn VR til ráðgjafar. Hún kemur saman að loknum fundi trúnaðarráðsins og tekur þá afstöðu til þess hvort kjarasamningum verði sagt upp eða ekki.Forysta VR hefur krafist þess að sínir félagsmenn fái það bætt í kjarasamningum að almennar hækkanir samkvæmt kjarasamningum hafi verið undir verðbólgu síðustu tvö ár. Þessu hefur forysta Samtaka atvinnulífsins hafnað.Í tilkynningu á vef VR er haft eftir Höllu Gunnarsdóttur, formanni samtakanna, að SA hafi skilað algjörlega auðu. „Við það verður ekki unað. Því vakna spurningar um hvort SA vilji í raun og veru að kjarasamningar haldi, að
Trúnaðarráð og stjórn VR ræða uppsögn kjarasamninga í kvöld

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd