Sjaldséð mótmæli í Moskvu

Um 60 mótmælendur voru handteknir í Moskvu í gær þegar um 2.000 manns komu saman á vegum Kommúnistaflokks landsins. Í fyrstu var efnt til samkomu til minningar um þá sem voru drepnir 4. október 1993 þegar þáverandi forseti Boris Jeltsín fyrirskipaði að skotið yrði á þinghús landsins. Samkoman í gær þróaðist í mótmæli og fólk lét í ljós vanþóknun á framkvæmd þingkosninga á dögunum og óánægju með stjórnvöld.Talið er að um 2.000 manns hafi mætt á viðburðinn sem er árlegur. Rússneskir fjölmiðlar greina frá því að fólk hafi hrópað slagorð og kallað eftir lausn pólitískra fanga og frjálsum kosningum. Hluti hinna handteknu var látinn laus í gærkvöld.Þingkosningar voru í Rússlandi 18. til 20. september. Eftir þær lýstu yfirvöld því yfir að flokkur Pútíns forseta, Sameinað Rússland, hefði fengið fl
Sjaldséð mótmæli í Moskvu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd