Fyrir umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar liggur tillaga um að farið verði í gagngerar úrbætur á gatnamótum Höfðabakka og Bæjarháls, en eftir breytingar, sem vinstri meirihlutinn í borgarstjórn réðist í fyrir fáeinum mánuðum, hefur umferðaröngþveiti skapast þar á álagstíma. Afgreiðslu málsins var frestað til næsta fundar.