Prinsinn fyrrverandi dregur lögregluna fyrir dóm

Dómstóll í Lundúnum tekur á fimmtudag fyrir mál Andrew Mountbatten-Windsor gegn bresku lögreglunni vegna húsleitar sem var gerð á heimili hans í febrúar. Mountbatten-Windsor, fyrrverandi prins, var handtekinn þegar lögregla rannsakaði hvort hann hefði brotið af sér í opinberu embætti.Rannsóknin er hluti af tengslum Mountbatten-Windsors við bandaríska barnaníðinginn Jeffrey Epstein. Mountbatten-Windsor hefur neitað sök.Prinsinn fyrrverandi freistar þess að fá felldar úr gildi heimildir dómstóla sem lögregla studdist við þegar hún gerði húsleit á heimili hans. Handtaka Mountbatten-Windsors vakti mikla athygli, ekki síst þegar birtar voru myndir af honum álútum í aftursæti bíls þegar honum var sleppt úr haldi.
Prinsinn fyrrverandi dregur lögregluna fyrir dóm

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd