Spánverjar ganga að kjörborðinu 29. nóvember, hálfu ári áður en kjörtímabilinu átti að ljúka. Pedro Sánchez, forsætisráðherra Spánar, tilkynnti í dag að hann hefði ákveðið að efna til þingkosninga.Frumvarp ríkisstjórnarinnar um breytingar á lögum um húsnæðismál náði ekki fram að ganga í síðustu viku. Meðal þess sem stjórnin vildi gera var að koma í veg fyrir útburð leigjenda og bæta stöðu þeirra.Þegar Sánchez boðaði til kosninga sagði hann að ríkisstjórnin þyrfti að fá aukinn stuðning við áform sín um úrbætur á húsnæðismarkaði. Hann leiðir minnihlutastjórn sem tókst ekki að afla þeirra atkvæða sem þurfti til að frumvarpið yrði að lögum.Sánchez hefur verið forsætisráðherra frá 2018.Líklegast er talið að Lýðflokkurinn, sem er miðhægriflokkur, verði stærstur á spænska þinginu eftir næstu kosn