Veðrinu verður misskipt í dag. Útlit er fyrir hægan vind á vestanverðu landinu og þar helst þurrt eftir rigningar síðustu daga. Norðaustan til blæs aðeins kröftugar og þar verður bæði blautara og kaldara. Suðaustan til má búast við rigningu framan af en síðan styttir upp að mestu.Norðan 3-8 metrar á sekúndu á vestanverðu landinu í dag og bjartviðri. Norðvestan 8-13 í norðausturfjórðungi landsins og rigning nærri sjávarmáli, en slydda eða snjókoma til fjalla. Rigning suðaustanlands framan af degi, síðan úrkomulítið. Hiti frá 1 stigi í innsveitum á Norðausturlandi, upp í 8 stig syðst. Hægari vindur í kvöld og kólnar, víða frost í nótt.Hæg breytileg átt á morgun og yfirleitt þurrt og bjart veður, en stöku skúrir við suðurströndina. Hiti 3 til 8 stig yfir daginn.