Lögregla var kölluð að heimahúsi í vesturhluta höfuðborgarsvæðisins eftir að tveir menn voru komnir með höfuðið inn um glugga dóttur húsráðanda.Lögreglukonur að störfum í miðborginni. Mynd úr safni.RÚVEkki kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hverjar málalyktir urðu. Lögreglumenn veittu einnig liðsinni vegna ágreinings við bílakaup, vísuðu ölvuðum manni út af hóteli þar sem hann var með vandræði og ræddu við ungmenni sem voru með vesen í strætó. Jafnframt brugðust lögreglumenn við samkvæmishávaða, þjófnuðum og innbrotum í verslanir og heimahús.