Í dag verður norðan 3-8 metrar á sekúndu og bjartviðri á vestanverðu landinu. Norðaustanlands verður 8-13 m/s og rigning nærri sjávarmáli en slydda eða snjókoma til fjalla og á Suðausturlandi má búast við rigningu framan af degi. Hitinn verður á bilinu 1 til 8 stig. Vindur verður hægari í nótt og víða frystir.